Heilsufarsskoðun
Heilsufarsþættir voru valdir til þess að auka þekkingu á samspili erfða, lífsstíls og streitu á heilsufar þjóðarinnar. Reyndir hjúkrunarfræðingar munu framkvæma skoðanir og munu þeir gæta fyllsta trúnaðar varðandi rannsóknar niðurstöður.
Heilsufarsskoðun mun taka u.þ.b 20-30 mín og í kjölfar hennar munu þátttakendur fá ráðgjöf og tilvísanir til heimilislæknis eða sérfræðings, sé þess þörf. Öllum þátttakendum mun verða heimilt að neita einstökum þáttum skoðunar, sé þess óskað getur þátttakandi einnig dregið þátttöku sýna alfarið til baka á hvaða tímapunkti sem er. Heilsufarsskoðanir munu fara fram í húsnæði Krabbameinsfélags Íslands við Skógarhlíð 8 strax í kjölfar krabbameinsskoðunar hjá konum en eftir hentugleika fyrir karlmenn. Allar rannsóknarniðurstöður og sýni munu verða dulkóðuð til þess að tryggja öryggi einstaklingsins um persónuvernd.
Heilsufarsþættir til skoðunar:
- Líkamsþyngdarstuðull (BMI) – þyngd/hæð²:Viðmiðunarmörk og ráðgjöf
Of létt/ur ˂ 18,4 Ef þú ert ekki nú þegar í eftiriliti vegna þyngdar og ráðgjöf við að auka orkugjöf þína varðandi mataræði þá er þér ráðlagt að leita þér aðstoðar hjá heimilislækni eða hjá hjúkrunarfræðingi á heilsugæslustöð þinni. Kjörþyngd 18,5 – 24,9 Allir ættu að stunda að reglulega hreyfingu (amk 30 mínútur á dag) og huga að hollu mataræði. Yfirþyngd 25 – 29,9 Þú mættir íhuga reglulega hreyfingu og ráðlagt mataræði til að stuðla að heilbrigðu líferni. Offita ˃ 30 Ef þú hefur ekki þegar gert viðeigandi ráðstafanir er mælt með að þú leitir ráðgjafar hjá heimilislækni til þess að ná kjörþyngd. Mikil hætta á þróun hjarta- og æðasjúkdóma
≥ 36 Það er mjög brýnt að þú gerir viðeigandi ráðstafanir varðandi hreyfingu og mataræði og mælt er með að þú leitir ráðgjafar hjá heimilislækni til þess að ná kjörþyngd. Þótt líkamsþyngdarstuðull gefi hugmynd um áhættu þína hvað varðar sjúkdóma gerir hann ekki greinarmunun á því hvort umframþyngdin er vegna vöðva eða fitu. Dæmi eru um sterkbyggða íþróttamenn með mikinn vöðmassa sem hafa BMI yfir 30 þótt þeir þjáist ekki af offitu. Því þarf að túlka BMI varlega hjá smágerðum og stórgerðum einstaklingum svo og þeim sem hafa mikinn vöðvamassa.
Þrátt fyrir takmarkanir á LÞS sem mælingu þá hefur stuðullinn gagnast vel við að mæla breytingar á hópum yfir tíma.
Hvernig viðhöldum við æskilegu BMI
- Höfum reglu á matmálstímum, borðum 4-5 sinnum á dag
- Höldum neysluvenjum í samræmi við orkuþörf
- Veljum réttar skammtastærðir
- Borða vel af grænmeti og ávöxtum með mat
- Stundum reglulega hreyfingu amk 30 mín á dag
- Neytum vatns sem er besti heilsudrykkurinn
- Borðum lítið af sykri og einföldum kolvetnum
Líkamsþyngdarstuðull
Líkamsþyngdarstuðull (LÞS)er reiknaður út frá hæð og þyngd með jöfnunni kg/m2.. Samkvæmt skilgreiningum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar miðast kjörþyngd við 18,5-24,99, ofþyngd við 25-29,99 en offita við 30 eða hærra. Líkamsþyngdarstuðull sem mæling á þyngd og massa hefur verið nokkuð umdeildur þar sem ekki er gerður greinarmunur á aldri eða kyni, jafnframt þá er ekki hægt að greina á milli líkamsþyngdar sem stafar af fitu, vöðvum eða öðrum vefjum líkamans. Líkamsþyngdarstuðul þarf því að túlka gætilega en vissulega er þetta sú mæling sem rannsóknir hafa sýnt fram á að tengist aukinni dánartíðin meðal þeirra sem eru yfir kjörþyngd. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að þeir sem eru yfir kjörþyngd séu í aukinni áhættu á hinum ýmsu sjúkdómum. Þess ber þó að geta að rannsóknum ber ekki alltaf saman um áhættu þeirra sem flokkast í ofþyngd og þeirra sem flokkast í offitu, á sjúkdómum og dánartíðni. Sumar rannsóknir sýna eins konar u- laga samband, en með því er átt við að áhættan sé aðeins tilkomin hjá þeim sem flokkast í undirvigt (< 18) og þeim sem flokkast í offitu (≥ 30).
Algengi offitu hefur þrefaldast frá árinu 1980 í Evrópu. Samkvæmt skýrslu sem gefin var út árið 2009 af Landlæknisembættinu, voru um 19% karla í offitu (LÞS ≥30) á Íslandi og um 21% kvenna voru í sama hópi (LÞS ≥30). Rannsóknir hafa sýnt að offita dregur úr meðal ævilengd einstaklinga. Rannsókn frá Bandaríkjunum sýndi að karlar og konur sem voru með hærri líkamsþyngdarstuðul en 30 (offita) við 40 ára aldur lifðu 6-7 árum skemur en þeir sem voru í kjörþyngd.
Það að vera í yfirvigt eða offitu setur okkur í aukna áhættu á sjúkdómum á borð við hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki 2 (insúlínóháð sykursýki). Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur reiknað út að draga megi úr um 64% tilfella sykursýki 2 með því að halda líkamsþyngdarstuðli við eða undir 25 kg/m2..
Hafa þarf hugfast að þegar fjallað er um samband ofþyngdar og offitu við heilsufar, að sambandið grundvallast á fleiri undirliggjandi þáttum á borð við hreyfingu og mataræði.
Góð hreyfing og hollt mataræði eru undirstöðuatriði þegar kemur að því að viðhalda æskilegum líkamsþyngdarstuðli. Hreyfum okkur daglega, 30 mínútur í senn. Það bætir heilsu og vellíðan.
Heimildir:
Drewnowski, A. (2009). Obesity, diets, and social inequalities. Nutr Rev, 67 Suppl 1, S36-39.
Fegal, M. K., Glaubard, B.I., Williamson, D.F. og Gail, M.H., (2005). Excess deaths associated with undiweight, overweight and obesity. Journala of the American Medical Accociation 293, (15), bls 1861-1867.
Valdimarsdóttir, M., Jónsson, S.H., Þorgeirsdóttir, H., Gísladóttir, E., Guðlaugsson, J.Ó., Þórlindsson,Þ. (2009). Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990 til 2007. Lýðheilsustöð. Sótt af http://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item11583/Holdafar.skyrsla.25.sept.pdf
WHO. (2007). The challenge of obesity in the WHO European Region and the strategies for response. Sótt af http://www.euro.who.int/__data/assets/pdf_file/0008/98243/E89858.pdf
Frekari fróðleikur um líkamsþyndarstuðul:
- Mittis og mjaðmaummál (Waist-hip ratio = mjaðmamál / mittismál):Viðmiðunarmörk og ráðgjöfÚtreikningur mittis- og mjaðmahlutfalls:Waist Hip ratio = (Mittismál / Mjaðmamál)
Grænt Eðlilegt, halda áfram heilsusamlegum lifnaðarháttum.
Gult Niðurstöður á jaðri, vera á varðbergi. Ástundun reglulegrar hreyfingar og huga að réttu mataræði.
Blár Vera á varðbergi fyrir aukinni þyngd, e.t.v. breyta lifnaðarháttum, hreyfing og bætt mataræði. Leita aðstoðar ef þarf.
Rautt Leita hjálpar og breyta lifnaðarháttum.
Fita sem leggst framan á kvið er talin hættulegri fyrir hjarta- og æðakerfið en önnur fita. Taka verður tillit til líkamsbyggingar hverju sinni t.d. ef lítill munur er á mittismálinu annars vegar og mjaðmaummálinu hins vegar þá skorar einstaklingurinn auðvitað hærra. Af þessu gefnu er ekki alltaf hægt að álykta að einstaklingurinn sé með of mikla kviðfitu/innri fitu.
Mittismál getur verið gagnlegt bæði til að meta offitu og einnig til að fylgjast með hvernig gengur að grenna sig.
Hvernig geturðu spornað við auknu mittisummáli:
- Borða 4-5x á dag í minni skömmtum
- Borða vel af grænmeti og ávöxtum með mat
- Sleppa hvítum sykri og einföldum kolvetnum
- Sleppa sykruðum drykkjum
- Regluleg hreyfing amk 30 mín á dag
- Drekka vel af vatni
Þegar mæla á mittis- og mjaðmaummál er einfaldlega notast við málband og skiptir því gríðarlegu máli að rétt sé farið að og að sömu aðferðum sé fylgt eftir við hverja mælingu. Taka þarf tillit til fjölda þátta þegar mæling er framkvæmd, til að mynda staðsetningu málbands, þéttleika mælingar (stífni) og gerð málbands. Hér er stöðlun mælitækja og vinnubraga lykilatriði.
Mittis- og mjaðmaummál hefur verið talin góð mæling til viðbótar við líkamsþyngdarstuðul. Mittis- og mjaðmaummál hefur jákvæða fylgni við innri kviðfitu, þ.e.a.s með vaxandi ummáli hækkar jafnframt innri kviðfita því má segja að mælingin gefi góða vísbendingu um innri kviðfitu. En hvers vegna er mikilvægt að mæla innri fitu? Svarið við þessari spurningu er byggt á fjölda rannsókna sem hafa sýnt að innri fita er talsvert hættulegri heldur en önnur fita, því hún tengist óeðlilegum efnaskiptum (t.d. skertu sykurþoli og/eða hækkun á slæmum blóðfitum) sem svo auka líkur á sjúkdómum á borð við sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdóma.
Heimildir:
Word health organization(2011). Waist circumference and Waist-Hip ratio. Report of WHO Expert Concultation. Sótt af http://whqlibdoc.who.int/publications/2011/9789241501491_eng.pdf
Carmienke, S.,Freitag, M.H., Pischon, T.,Schlattmann, P.,Fankhaenel, T.,Goebel, H., Gensichen, J.(2013).General and abdominal obesity parameters and their combination in relation to mortality: a systematic review and meta-regression analysis. European Journal of Clinical nutrition, 67, 573-585.
Frekari fróðleikur um mittis- og mjaðmaummál
Reiknaðu út mittis- og mjaðmaummál þitt (waist to hip ratio).
- Blóðþrýstingur:Viðmiðunarmörk og ráðgjöf
≤ 120/80 mmHg Grænt ljós – Kjörþrýstingur Blóðþrýstingur þinn er innan eðlilegra marka
Mælt er með að þú haldir áfram heilbrigðum lifnaðarháttum og látir mæla blóðþrýsting þinn á ca 5 ára fresti. ˂ 135/85 mmHg Grænt ljós – Eðlilegur blóðþrýstingur Blóðþrýstingur þinn er innan æskilegra marka
Mælt er með að þú haldir áfram heilbrigðum lifnaðarháttum og látir mæla blóðþrýsting þinn á ca 5 ára fresti 135-139 / 85-89 mmHg Gult ljós – Jaðarháþrýstingur Blóðþrýstingur þinn er innan marka en vægt hækkaður, jaðarhækkun.
Mælt er með að þú fylgist reglulega með blóðþrýstingnum hjá heimilislækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni og stundir reglulega hreyfingu og bætir mataræði ef þarf. ≥ 140-160 / 90-95 mmHg Rautt ljós – Háþrýstingur Blóðþrýstingur þinn er yfir æskilegum viðmiðum .
Ef þú hefur ekki þegar gert viðeigandi ráðstafanir þá mælum við með að þú leitir ráðgjafa hjá heimlilislækni þínum. Mikilvægt ástundun reglulegrar hreyfingar og bætt mataræði. Hvað er hægt að gera til að vinna gegn háþrýstingi/ heilablóðfalli:
- Þyngdartap/léttast – breyta mataræði, ekki svelti.
- Reglubundin hreyfing.
- Minnkuð saltneysla.
- Takmörkun á áfengisneyslu.
- Ástundun slökunar – minnka streituvalda.
Helstu áhættuþættir háþrýstings:
- Erfðir
- Kyn
- Offita
- Hreyfingarleysi
- Reykingar
- Of mikil saltneysla
- Ofneysla áfengis
- Fyrri heilsufarsþættir
Annars eru orsakir óþekktar í 95% tilfella.
- Púls:Viðmiðunarmörk og ráðgjöfHjartsláttartíðni
- Meðalhvíldarpúls 72 sl/min
Æskilegur hvíldarpúls 50 – 80 sl/min Mælt er með að þú haldir áfram heilbrigðum lifnaðarháttum og látir mæla púlsinn þinn amk á 5 ára fresti. Of lágur hvíldarpúls ≤ 49 sl/min Mælt er með að þú hafir samband við heimilislækni eða annan heilbrigðisstarfsmann til frekari skoðunar. Of hár hvíldarpúls ≥ 90 – 100 sl/min Mælt er með að þú hafir samband við heimilislækni eða annan heilbrigðisstarfsmann til frekari skoðunar. Óreglulegur hjartsláttur: þá er mælt með því að þátttakandi leiti til læknis til frekari skoðunar.
Hvað getur þú gert við háum púls eða fyrirbyggt háan púls:
- Stunda þol- eða brennsluæfingar (hraða göngu, skokk, hlaup, sund)
- Viðhalda þyngd innan skynsamlegra marka
- Fyrirbyggja streituvaldandi aðstæður
- Minnka koffínneyslu
- Minnka sykurneyslu
- Hætta að reykja
- Blóðsýnataka: Áætlað er að blóðsýnum (40 ml per einstakling) verði safnað frá öllum þátttakendum. Blóðsýni verða varðveitt undir kóða í Lífsýnasafni Íslenskrar erfðagreiningar en með því tryggjum við öryggi þitt sem þátttakenda um persónuvernd. Að frátöldum smávægilegum óþægindum eru litlar líkur á aukaverkunum eða áhættu tengdum blóðsýnatöku. Tveir hjúkrunarfræðingar verða á svæðinu og munu þær annast blóðsýnatöku ásamt heilsufarsskoðun í heild sinni. Hjúkrunarfræðingar rannsóknar eru vel þjálfaðir og hafa unnið klíníska vinnu til fjölda ára.
- Hársýni – þar er mælt magn streituhormónsins kortisóls í hárinu (klipptir tveir mjög litlir lokkar úr hári fyrir neðan hnakkabeinið aftarlega á höfði)