TAKA ÞÁTT Í EFTIRFYLGDARRANNSÓKN ÁFALLASÖGU KVENNA! - afallasaga.is
16624
page-template-default,page,page-id-16624,bridge-core-2.1,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-theme-ver-19.7,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-6.1,vc_responsive,elementor-default,elementor-kit-16425,elementor-page elementor-page-16624
 

TAKA ÞÁTT Í EFTIRFYLGDARRANNSÓKN ÁFALLASÖGU KVENNA!

Áfallasaga kvenna er langtímarannsókn og nú býðst öllum konum sem tóku þátt í fyrsta hluta rannsóknarinnar 2018-2019 að taka þátt í eftirfylgdarrannsókn. 

Markmið hennar er að kanna möguleg heilsufarsáhrif áfalla til lengri tíma, og skoða hvernig tíðni ólíkra áfalla breytist yfir tíma.

Sem fyrr felst þátttaka í svörun spurningalista sem tekur um 30-50 mínútur að svara.

 

HÉR má finna ítarlegar upplýsingar um markmið og þátttöku í rannsókninni.

Til að tryggja skilyrðislausa persónuvernd þátttakenda er ekki hægt að skrá sig í rannsóknina án þess að nota Íslykil eða rafræn skilríki.

Þannig er tryggt að ómögulegt sé að greina eða rekja svör. Rannsakendur hafa ekki aðgang að persónugreinanlegum svörum. Upplýsingar sem safnast í rannsókninni verða einungis notaðar til þess að skapa þekkingu á þessu mikilvæga sviði.

 

Ef þú hefur hvorki Íslykil né rafræn skilríki má finna einfaldar leiðbeiningar hér neðst á síðunni um hvernig þú útvegar þér þau.

 

Einnig þarftu að hafa aðgang að tölvu eða snjallsíma til að geta svarað spurningalista rannsóknarinnar.

 

Áður en þú skráir þig í rannsóknina þá mælum við með því að þú skoðir upplýsingar um rannsóknina sem finna má hér.

 

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt þá getur þú skráð þig hér, þar sem þú gefur upp Íslykil eða rafræn skilríki.

 

Þegar þú ert búin að skrá þig inn kemur texti sem við óskum eftir að þú lesir vandlega og neðst ertu beðin um að haka við upplýst samþykki. Þar biðjum við líka um netfangið þitt og farsímanúmer. Að því loknu getur þú svarað spurningalista rannsóknarinnar.

 

Hægt er að taka sér hvíld frá því að svara spurningunum með því að loka könnuninni. Til að halda áfram þar sem frá var horfið þá einfaldlega smellir þú á krækjuna sem þú fékkst senda með tölvupósti og símaskilaboðum (ef þú óskaðir eftir því).

 

Athugaðu að það er mikilvægt að fá svör við öllum spurningunum. Ef þú vilt ekki eða getur ekki svarað einstaka spurningum þá er hægt að haka við “Get / Vil ekki svara”.