04 jan Fjallað um niðurstöður rannsóknarinnar Áfallasögu kvenna í grein CNN
Greinin birtist 20. desember 2021 á vef CNN
Kynbundið ofbeldi er dauðans alvara og ein af stóru lýðheilsuáskorunum nútímans.
CNN birti þann 20. desember 2021 ítarlega umfjöllun um kynferðis- og heimilisofbeldismál á Íslandi. Í greininni kemur meðal annars fram að þrátt fyrir að Ísland líti á blaði út fyrir að vera frábær staður fyrir konur og sé mjög ofarlega þegar kemur að jafnrétti kynjanna, þá sé ýmislegt sem betur megi fara hvað varðar kynbundið ofbeldi.
Bent er á að kynjahlutföllin á Alþingi séu mjög jöfn, sem og kynjahlutföllin í stjórnum íslenskra fyrirtækja. En það segi hins vegar ekki alla söguna, því þrátt fyrir að jafnrétti virðist vera í hávegum haft virðist konur sem orðið hafa fyrir kynferðis- eða heimilisofbeldi oft eiga erfitt með að leita réttar síns. Mál þeirra séu gjarnan látin niður falla. Ísland sé því kannski ekki sú femínistaparadís sem það líti út fyrir að vera í fyrstu.
Í greininni: „The world´s best place to be a woman’ is being sued for misogyny“ er rætt við forsvarskonur Áfallasögu Kvenna, þær Örnu Hauksdóttur og Unni Önnu Valdimarsdóttur og sagt stuttlega frá niðurstöðum Áfallasögu rannsóknarinnar, sem nær til um 30.000 kvenna búsettra á Íslandi. Niðurstöðurnar benda til að um 40% kvenna á Íslandi hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi og er þetta sett í samhengi við málsókn þolenda til Mannréttindadómstóls Evrópu á hendur íslenska ríkisinu vegna málsmeðferðar þeirra og jafnframt þeirrar staðreyndar að Ísland hefur í 12 ár verið á toppi lista um kynjajafnrétti World Economic Forum.
,,Ísland er góður staður fyrir konur, við höfum greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, dagvistun barna, menntun og fjölda annarra þátta sem flestir jarðarbúar fara á mis við, en þessar tölur eru samt sem áður raunverulegar“ segir Arna Hauksdóttir
Fjallað var um greinina á helstu fréttamiðum landsins og hægt að skoða efni hennar nánar á íslensku hér:
https://www.ruv.is/frett/2021/12/20/rikid-hafi-gert-mistok-vid-rannsokn-ofbeldisbrota
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/12/20/cnn_fjallar_um_ad_islenska_rettarkerfid_bregdist_ko/