01 feb Fyrsta vísindagreinin úr Áfallasögu kvenna birt í eLife í dag
Áföll í æsku tengd geðheilsuvanda og skertri seiglu á fullorðinsárum.
Niðurstöður hinnar viðamiklu rannsóknar Áfallasaga kvenna sýna að sterk tengsl eru milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsuvanda og skertrar getu kvenna til að takast á við áskoranir daglegs lífs á fullorðinsárum. Sagt er frá niðurstöðunum í alþjóðlega vísindatímaritinu eLife í dag.
Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn við Háskóla Íslands og ein sú stærsta sinnar tegundar á heimsvísu. Á árunum 2018-19 tóku um 32.000 konur búsettar á Íslandi þátt í rannsókninni, sem samsvarar um 30% fullorðinna kvenna hérlendis á vinnufærum aldri. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um áföll á lífsleiðinni ásamt spurningum um geðræn einkenni og heilsufar á fullorðinsárum.
Í þeirri vísindagrein sem birtist í dag var sjónum beint að áföllum í æsku, þar á meðal vanrækslu, kynferðisofbeldi, einelti, heimilisofbeldi, geð- og fíknivanda á heimili og andláti foreldra. Niðurstöðurnar benda til þess að tæplega helmingur kvenna hafi orðið fyrir fleiri en einu áfalli í æsku og um 10% hafi upplifað fimm eða fleiri áföll. Þá voru sterk tengsl milli fjölda áfalla í æsku og skertrar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs (seiglu) og aukinnar hættu á sálrænum einkennum á borð við áfallastreitu, þunglyndi, kvíða, svefntruflanir og áfengisvanda á fullorðinsárum. Þau áföll í æsku sem höfðu hvað sterkust tengsl við sálræn einkenni og skerta seiglu á fullorðinsárum voru tilfinningaleg vanræksla, kynferðislegt ofbeldi einelti og geðrænn vandi á heimili.
Þá höfðu ýmsir verndandi þættir geðheilbrigðis, til að mynda góð félagsleg tengsl og góður fjárhagur, lítil sem engin áhrif á tengslin milli áfalla í æsku og skertar seiglu og geðvanda á fullorðinsaárum. „Það sýnir hversu afdrifarík áföll í æsku eru fyrir heilsu kvenna til lengri tíma og hversu mikilvægt er að koma koma í veg fyrir þau og styðja við börn sem lenda í slíkum áföllum,“ segja Hilda Björk Daníelsdóttir, doktorsnemi og fyrsti höfundar rannsóknarinnar, og Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Áfallasögu kvenna.
Í umsögn ritstjóra eLife um rannsóknina segir að niðurstöður hennar séu mikilvægt framlag til aukinnar þekkingar og vitundarvakningar um áhrif áfalla í æsku á seiglu og heilsufar. Vænta má frekari niðurstaðna úr fjölda annarra verkefna úr rannsókninni Áfallasögu kvenna á næstu misserum.
Nánari upplýsingar veita:
Hilda Björk Daníelsdóttir; hilda.bjork.danielsdottir@ki.se
Unnur A. Valdimarsdóttir; unnurav@hi.is; s. 6948388
Fréttatilkynning birtist á vef Háskóla Íslands þann 1.2.2022 https://www.hi.is/frettir/afoll_i_aesku_tengd_gedheilsuvanda_og_skertri_seiglu_a_fullordinsarum