Fyrsta vísindagreinin úr Áfallasögu kvenna birt í eLife í dag
16332
post-template-default,single,single-post,postid-16332,single-format-standard,bridge-core-2.1,ajax_fade,page_not_loaded,,qode_grid_1200,qode-theme-ver-19.7,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-6.1,vc_responsive,elementor-default,elementor-kit-16425

Fyrsta vísindagreinin úr Áfallasögu kvenna birt í eLife í dag

Áföll í æsku tengd geðheilsuvanda og skertri seiglu á fullorðinsárum.

Niðurstöður hinnar viðamiklu rannsóknar Áfallasaga kvenna sýna að sterk tengsl eru milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsuvanda og skertrar getu kvenna til að takast á við áskoranir daglegs lífs á fullorðinsárum. Sagt er frá niðurstöðunum í alþjóðlega vísindatímaritinu eLife í dag.

Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn við Háskóla Íslands og ein sú stærsta sinnar tegundar á heimsvísu. Á árunum 2018-19 tóku um 32.000 konur búsettar á Íslandi þátt í rannsókninni, sem samsvarar um 30% fullorðinna kvenna hérlendis á vinnufærum aldri. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um áföll á lífsleiðinni ásamt spurningum um geðræn einkenni og heilsufar á fullorðinsárum.

Í þeirri vísindagrein sem birtist í dag var sjónum beint að áföllum í æsku, þar á meðal vanrækslu, kynferðisofbeldi, einelti, heimilisofbeldi, geð- og fíknivanda á heimili og andláti foreldra.  Niðurstöðurnar benda til þess að tæplega helmingur kvenna hafi orðið fyrir fleiri en einu áfalli í æsku og um 10% hafi upplifað fimm eða fleiri áföll. Þá voru sterk tengsl milli fjölda áfalla í æsku og skertrar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs (seiglu) og aukinnar hættu á sálrænum einkennum á borð við áfallastreitu, þunglyndi, kvíða, svefntruflanir og áfengisvanda á fullorðinsárum. Þau áföll í æsku sem höfðu hvað sterkust tengsl við sálræn einkenni og skerta seiglu á fullorðinsárum voru tilfinningaleg vanræksla, kynferðislegt ofbeldi einelti og geðrænn vandi á heimili.

Þá höfðu ýmsir verndandi þættir geðheilbrigðis, til að mynda góð félagsleg tengsl og góður fjárhagur, lítil sem engin áhrif á tengslin milli áfalla í æsku og skertar seiglu og geðvanda á fullorðinsaárum.  „Það sýnir hversu afdrifarík áföll í æsku eru fyrir heilsu kvenna til lengri tíma og hversu mikilvægt er að koma koma í veg fyrir þau og styðja við börn sem lenda í slíkum áföllum,“ segja Hilda Björk Daníelsdóttir, doktorsnemi og fyrsti höfundar rannsóknarinnar, og Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Áfallasögu kvenna.  

Í umsögn ritstjóra eLife um rannsóknina segir að niðurstöður hennar séu mikilvægt framlag til aukinnar þekkingar og vitundarvakningar um áhrif áfalla í æsku á seiglu og heilsufar.  Vænta má frekari niðurstaðna úr fjölda annarra verkefna úr rannsókninni Áfallasögu kvenna á næstu misserum.

Nánari upplýsingar veita:

Hilda Björk Daníelsdóttir; hilda.bjork.danielsdottir@ki.se

Unnur A. Valdimarsdóttir; unnurav@hi.is; s. 6948388

Fréttatilkynning birtist á vef Háskóla Íslands þann 1.2.2022 https://www.hi.is/frettir/afoll_i_aesku_tengd_gedheilsuvanda_og_skertri_seiglu_a_fullordinsarum