Langtímaáhrif áfalla á heilsufar
16871
post-template-default,single,single-post,postid-16871,single-format-standard,bridge-core-2.1,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-title-hidden,qode_grid_1200,qode-theme-ver-19.7,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-6.1,vc_responsive,elementor-default,elementor-kit-16425

Langtímaáhrif áfalla á heilsufar

Framhald á áfallasögu kvenna: 2024 Rannsókn er hafin á langtímaáhrifum áfalla á heilsu kvenna.

Eftirfarandi frétt birtist í Morgunblaðinu þann 24. janúar 2024, sjá hér.

„Áfallasaga kvenna var skipulögð sem langtímarannsókn alveg frá upphafi,“ segir Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor og annar aðalrannsakenda vísindarannsóknar um áfallasögur kvenna. Hún segir þátttakendur í rannsókninni árin 2018-2019 hafa gefið heimild til að haft yrði samband við þá aftur í eftirfylgdarrannsókn, til að dýpka upplýsingarnar.

„Það sem er mikilvægt í svona rannsóknum er að ná framsýnum gögnum og geta skoðað heilsufar til lengri tíma. Við erum að skoða ýmis einkenni sem við höfum ekki skoðað áður, eins og áhrif áfalla á tíðahvörf og þætti eins og aukna þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og hvernig aðstoð í kjölfar áfalla skilar sér í heilsufari til lengri tíma litið.“

Rúmlega 30% íslenskra kvenna á aldrinum 18-69 ára tóku þátt í fyrri rannsókninni sem hefur vakið mikla athygli um allan heim. Niðurstöður hennar voru að áföll í æsku og áreitni og ofbeldi gagnvart ungum konum hefur mikil áhrif á andlega og líkamlega heilsu á fullorðinsárum. Rannsóknin staðfesti einnig tíðni ýmissa áfalla, þ.á.m. ofbeldis, meðal íslenskra kvenna, en um 40% kvennanna höfðu orðið fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi á lífsleiðinni.

Unnur segir að í fyrri rannsókninni hafi það komið í ljós að það sé sérstaklega há tíðni áfalla og ofbeldis sem beinist gegn ungum konum. „Við erum núna að skoða líka hvaða áhrif það hefur á námsframvindu og þátttöku þessara kvenna í atvinnulífinu síðar meir. Þetta er bæði gífurlegur kostnaður fyrir einstaklinginn og einnig fyrir samfélagið.“

Nánari upplýsingar um eftirfylgdarrannsóknina má finna hér.