TAKA ÞÁTT Í ÁFALLASÖGU KVENNA 2024 - afallasaga.is
16624
page-template-default,page,page-id-16624,bridge-core-2.1,ajax_fade,page_not_loaded,,qode_grid_1200,qode-theme-ver-19.7,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-6.1,vc_responsive,elementor-default,elementor-kit-16425
 

TAKA ÞÁTT Í ÁFALLASÖGU KVENNA 2024

Áfallasaga kvenna er langtímarannsókn og nú býðst öllum konum sem tóku þátt í fyrsta hluta rannsóknarinnar 2018-2019 að taka þátt í eftirfylgdarrannsókn 2024. Markmið hennar er að kanna möguleg heilsufarsáhrif áfalla til lengri tíma, og skoða hvernig tíðni ólíkra áfalla breytist yfir tíma. Sem fyrr felst þátttaka í svörun spurningalista sem tekur um 30-50 mínútur að svara.

 

 

Ef þú vilt taka þátt þá smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan.

Hér má finna ítarlegar upplýsingar um markmið og þátttöku í rannsókninni.

 

Rannsakendur hafa ekki aðgang að persónugreinanlegum svörum og upplýsingar sem safnast í rannsókninni verða einungis notaðar til þess að skapa þekkingu á þessu mikilvæga sviði.

Til þess að svara spurningalista rannsóknarinnar þarft þú að hafa Íslykil eða rafræn skilríki, ásamt aðgangi að tölvu eða snjallsíma. Ef þú hefur ekki rafræn skilríki má finna einfaldar leiðbeiningar hér um hvernig þú útvegar þér þau: Rafræn skilríki.

 

Áður en þú skráir þig í rannsóknina þá mælum við með því að þú skoðir upplýsingar um rannsóknina sem finna má hér.

 

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt þá getur þú skráð þig hér.

 

Þegar þú ert búin að skrá þig inn kemur texti sem við óskum eftir að þú lesir vandlega og neðst ertu beðin um að haka við upplýst samþykki. Þar biðjum við líka um netfangið þitt og farsímanúmer. Að því loknu getur þú svarað spurningalista rannsóknarinnar.

 

Hægt er að taka sér hvíld frá því að svara spurningunum með því að loka könnuninni. Til að halda áfram þar sem frá var horfið þá einfaldlega smellir þú á krækjuna sem þú fékkst senda með tölvupósti og símaskilaboðum (ef þú óskaðir eftir því).

 

Athugaðu að það er mikilvægt að fá svör við öllum spurningunum. Ef þú vilt ekki eða getur ekki svarað einstaka spurningum þá er hægt að haka við “Get / Vil ekki svara”.