Unnur er aðalrannsakandi og ábyrgðarmaður Áfallasögu kvenna. Unnur er prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands en rannsóknir hennar snúa aðallega að áhrifum áfalla og þungbærrar lífsreynslu á heilsufar og sjúkdómsáhættu.
Arna er prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og aðalrannsakandi í Áfallasögu kvenna. Rannsóknir Örnu hafa einkum beinst að áhrifum áfalla, t.d. ástvinamissis og náttúruhamfara, á andlega og líkamlega heilsu.
Thor er prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við HÍ og forstöðumaður Tölfræðiráðgjafar Heilbrigðisvísindasstofnunar HÍ. Rannsóknir Thors hafa beinst að notkun áhættureikna og hagnýtingu líftölfræði í heilbrigðisvísindum, notkun erfðafræði í faraldsfræði og faraldsfræði hjarta- og æðasjúkdóma. Thor er tölfræðingur rannsóknarinnar.
Edda er lektor við Læknadeild Háskóla Íslands og klínískur sálfræðingur hjá Landspítalanum. Hún er meðrannsakandi í Áfallasögu kvenna. Helstu rannsóknir hennar snúa að áhrifum áfalla á heilsufar, sér í lagi áfallastreitu og svefnvandamál
Gunnar er lektor við Læknadeild Háskóla Íslands. Hann stundar m.a. rannsóknir á heilsutengdum lífsgæðum og hvernig meta skuli meðferðarsvörun hjá fólki með æðabólgusjúkdóma. Gunnar er meðrannsakandi og gagnagrunnsstjóri Áfallasögu kvenna.
Harpa er með meistaragráðu í læknisfræðilegri tölfræði. Hún er gagnagrunnsstjóri hjá Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og verkefnisstjóri Áfallasögu kvenna.
Þórhildur var nýdoktor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Læknadeild HÍ og er nú lektor hjá Sálfræðideildinni í HR. Hún er sálfræðingur með doktorsgráðu úr Virginia Tech og vann við rannsóknir hjá Max Planck Institute of Psychiatry í Þýskalandi. Rannsóknir hennar snúa að samspili umhverfis og erfða í mótun geðraskana.
Hilda er með MS í lýðheilsu- og faraldsfræði og BS gráðu í sálfræði. Doktorsverkefni hennar fjallar um seiglu (e. resilience) í kjölfar áfalla og er markmið þess að rannsaka faraldsfræðilega og erfðafræðilega þætti seiglu í kjölfar áfalla, en seigla hefur verið skilgreind sem aðlögunarhæfni eða hæfni einstaklings til að halda heilsu í þungbærum aðstæðum.
Svava er með MS í faraldsfræði og bakgrunn í sálfræði og hagnýtri tölfræði. Doktorsverkefni hennar snýr að kynferðislegri áreitni á vinnustöðum og áhrifum á heilsufar.
Dóra er verkefnisstjóri við Miðstöð í lýðheilsuvísindum. Hún sér um fjárhagslegan rekstur og aðra verkþætti rannsóknarinnar.
Anna Bára er með MPH gráðu í lýðheilsuvísindum og BS gráðu í sálfræði. Doktorsverkefni hennar fjallar um áhrif umhverfis- og erfðarþátta á svefntruflanir meðal kvenna.
Rebekka er verkefnisstjóri í Áfallasögu kvenna og sér um gagnasöfnun rannsóknarinnar.
Huan er dósent við Háskólann í Sichuan héraði í Kína og gestavísindamaður við Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar beinast að því að skilja hvernig áfallatengdar raskanir og lífsáföll hafa áhrif á heilbrigði og sjúkdómaþróun.
Jóhanna er faralds- og næringafræðingur og lektor við Læknadeild HÍ. Hún hafði umsjón með framkvæmd Áfallasögu kvenna á tímabilinu 2017 til 2019 og er meðrannsakandi í rannsókninni. Rannsóknir Jóhönnu snúast að mestu um tengsl milli lífsstíls og krabbameina.
Jóhanna er líftölfræðingur og lektor við Læknadeild HÍ. Rannsóknir hennar snúa að hagnýtingu tölfræði á sviði heilbrigðisvísinda og erfðafræði ásamt þróun tölfræðilegra aðferða fyrir erfðafræðirannsóknir.
Donghao er læknir og nýdoktor við Karolinska Institutet og Harvard T.H. Chan School of Public Health. Hann stundar rannsóknir á geðröskunum kvenna, þá sérstaklega að skilja orsakir æxlunartengdra geðrasakana (t.d. fyrirtíðarspennu og fæðingarþunglyndis) og mögulegar heilsufarslegar afleiðingar þeirra.
Andri er prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast einkum að áhrifum félagslegra áfalla á heilsu, meðal annars á félagsfælni og áfallastreituröskun. Andri er meðrannsakandi í Áfallasögu kvenna.
Rebekka er almennur læknir og doktorsnemi í lýðheilsuvísindum. Doktorsverkefni hennar fjallar um lífeðlisfræðilegar afleiðingar ofbeldis gegn konum. Þessa stundina vinnur hún að rannsókn um möguleg tengsl ofbeldis og hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum.
Kristjana er faraldsfræðingur og dósent við Læknadeild Háskóla Íslands og meðrannsakandi í Áfallasögu kvenna. Rannsóknaráherslur hennar eru á sviði heilsu mæðra og barna, smitsjúkdóma, hnattrænnar heilsu og aðgengis og gæða heilbrigðisþjónustu.