Þakklátar konur strax byrjaðar að rjúka á hana í sundi - afallasaga.is
15336
post-template-default,single,single-post,postid-15336,single-format-standard,bridge-core-2.1,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-title-hidden,qode_grid_1200,qode-theme-ver-19.7,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-6.1,vc_responsive,elementor-default,elementor-kit-16425

Þakklátar konur strax byrjaðar að rjúka á hana í sundi

Viðtal við Unni Valdimarsdóttur sem birtist á visir.is 1. mars 2018

Unnur Anna Valdimarsdóttir er prófessor í faraldsfræði við læknadeild Háskóla Íslands og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar
Unnur Anna Valdimarsdóttir er prófessor í faraldsfræði við læknadeild Háskóla Íslands og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar
MYND/HÁSKÓLI ÍSLANDS

„Við erum bara alveg ofboðslega hamingjusöm yfir viðtökunum og ótrúlega bjartsýn,“ segir Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, um viðbrögð við rannsókninni sem hleypt var af stokkunum í vikunni.

Heimasíða rannsóknarinnar var opnuð síðastliðinn þriðjudag og þá var einnig opnað fyrir þátttöku í verkefninu. Öllum íslenskumælandi konum 18 ára og eldri er boðið að taka þátt en um er að ræða spurningalista á rafrænu formi sem tekur um 25-40 mínútur að svara. Aðalmarkmið rannsóknarinnar er að kanna áhrif áfalla á heilsufar kvenna.

Unnur Anna segir í samtali við Vísi að nú þegar séu þúsundir kvenna byrjaðar að senda inn svör, jafnvel þó að formlegar þátttökubeiðnir hafi enn ekki verið sendar út. Þær konur sem vilja taka þátt í rannsókninni geta skráð sig inn á heimasíðu Áfallasögu kvenna með rafrænum skilríkjum eða íslykli.

Þekkingin muni nýtast á alþjóðlegum vettvangi

Kynningarfundur verkefnisins verður haldinn í dag 1. mars í húsi Íslenskrar erfðagreiningar. Fundurinn hefst klukkan fimm og stendur til hálf 7 en meðal þeirra sem flytja erindi eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, Kári Stefánsson, læknir og erfðafræðingur, auk Unnar sjálfrar.

„Á fundinum ætlum við að fara yfir aðdraganda verkefnisins, hvað við höfum verið að gera á síðustu árum og það sem leiddi í raun til þess að við fengum fjármagn frá Evrópska rannsóknarráðinu. Svo skoðum við líka stöðu þekkingar á þessu sviði og stöðu þolenda áfalla- og ofbeldisverka,“ segir Unnur og bætir við að rannsóknin muni teygja anga sína utan landsteinanna.

„Við gerum ráð fyrir því að þetta verkefni sem við erum að leggja út í skili þekkingu sem nýtist ekki bara hér heldur líka annars staðar í heiminum.“

Verkefnið þarft og spurningalistinn þægilegur

Aðspurð segir Unnur enn fremur að viðbrögð við verkefninu hafi verið gríðarlega jákvæð og komi úr öllum áttum.

„Já, alveg svakalega. Ég var í sundi í gærmorgun og þar ruku á mig konur sem höfðu verið að svara listanum og voru að deila með mér upplifunum sínum. Þetta hafa verið mjög jákvæð viðbrögð og mér finnst eins og fólki þyki mjög þægilegt að svara listanum og finnist verkefnið þarft.“

Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn sem miðar að því að auka þekkingu á ýmsum áföllum á lífsleiðinni, þar á meðal ofbeldi, og áhrifum þeirra á heilsufar kvenna. Rannsóknin er á vegum Háskóla Íslands og er unnin í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu.