Áföll í æsku tengd einkennum fyrirtíðaraskana á fullorðinsárum.
16357
post-template-default,single,single-post,postid-16357,single-format-standard,bridge-core-2.1,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-title-hidden,qode_grid_1200,qode-theme-ver-19.7,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-6.1,vc_responsive,elementor-default,elementor-kit-16425

Áföll í æsku tengd einkennum fyrirtíðaraskana á fullorðinsárum.

Nýjar niðurstöður úr rannsókninni Áfallasaga kvenna voru birtar í febrúar 2022 á vef BMC Medicine.

Þessi rannsókn tók til þeirra tæplega 12.000 þátttakenda rannsóknarinnar Áfallasögu kvenna sem höfðu haft blæðingar árið fyrir þátttöku. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, m.a. um áföll í æsku og einkenni fyrirtíðaraskana en það eru margvísleg líkamleg og andleg einkenni kvenna í aðdraganda blæðinga. Niðurstöður sýndu sterk tengsl milli áfalla í æsku og einkenna fyrirtíðaraskana á fullorðinsárum — þannig voru konur sem höfðu upplifað fjögur eða fleiri áföll í æsku meira en tvöfalt líklegri til að þjást af einkennum fyrirtíðaraskana en þær sem ekki áttu sögu um áfall í æsku.  Þau áföll í æsku sem höfðu sterkust tengsl við einkenni fyrirtíðaröskunar voru kynferðislegt ofbeldi og tilfinningaleg vanræksla.   

Þetta er önnur vísindagreinin sem birst hefur á stuttum tíma frá rannsókninni Áfallasögu kvenna sem sýnir fram á mikilvægi áfalla í æsku kvenna í þróun heilsubrests á fullorðinsárum. Nýlega birtust niðurstöður í vísindaritinu eLife um tengsl áfalla í æsku við almennan geðheilsuvanda og skertar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs: https://afallasaga.is/afoll-i-aesku-tengd-gedheilsuvanda-og-skertri-seiglu-a-fullordinsarum/

Samantekið benda niðurstöður þessara tveggja vísindagreina til þess að forvarnir í barnæsku og stuðningur við börn sem lenda í áföllum geti haft mikilvæg áhrif á heilsufar á fullorðinsárum: https://afallasaga.is/afoll-i-aesku-fylgja-konum-ut-aevina/